Awesome...awesome to the max!
mánudagur, mars 01, 2004
Újé, LotR:TRotK fékk 11 af 11 mögulegum óskarsverðlaunum. Újéújéújé...
must go sleeping...
so sleepy...
s..*snore*
mánudagur, febrúar 23, 2004
Ætla að setja inn fyrirlestur sem vð Drési gerðum í 6. bekk...nenni engan veginn að breyta honum í ritgerðarform...
Leitin að lífi
Áður en við byrjum að fjalla um þetta mál viljum við biðja áheyrendur að gleyma eftirfarandi:
- ET
- Hringir í ökrum
- Brottnám af geimverum
- Area 51
- “Allar geimverur eru eins og við, bara með öðruvísi enni”- tilgátan
Þessi fyrirlestur á miklu meira skylt við heimspeki en stjörnufræði nokkurn tíma, þar eð við þekkjum bara okkar tegund af lífi, og það veitir mjög takmarkaðan grunn fyrir leitina að lífi sem er ólíkt því sem við þekkjum. Það eru fáar vísindalegar sannanir eða staðreyndir í þessu máli, og það besta sem við getum gert er að skoða tilgátur byggðar á raunhæfum vísindum.
Hvað er líf?
Öll þekkjum við klassísku líffræði skilgreininguna. Líf hefur 7 einkenni:
Líf er gert úr frumum, Líf nærist, Líf fjölgar sér, Líf hreyfist, Líf bregst við áreiti o.s.frv.
Þessi skilgreining er samt heldur þröng, þó hún lýsi vel lífi eins og við þekkjum það. Ef við erum að hugsa um líf á öðrum plánetum hins vegar, er engin leið að vita hvort það líf þyrfti að fylgja nákvæmlega sömu reglum og okkar. Einföld skilgreining á lífi er að líf er hvað sem forðast hrörnunina í átt að jafnvægi. Það sem er lifandi hirðir orku úr umhverfinu til þess að koma í veg fyrir hrörnun í sjálfu sér.
Lengi ræddu stjarnfræðingar um lífbelti umhverfis stjörnur, sem væri það svæði sem líkur væru á að finna líf. Þetta svæði er u.þ.b. það bil fjarlægðar frá sólu þar sem vatn væri að finna á fljótandi formi. Nýlega hafa menn þó þurft að hugsa þessa hugsun algjörlega upp á nýtt. Nýjar rannsóknir benda t.d. til þess að hita og fljótandi vatn sé að finna undir íshellunni á Evrópu, sem þó er langt utan skilgreinds líf-beltis sólarinnar. Einnig hafa menn fundið bakteríur sem þola meiri eða minni hita en áður var talið mögulegt. Og einnig eru til bakteríur sem lifa í brennisteinssýru. Ofan á það bætist sú hugsun að e.t.v. þurfi ekki allt líf á vatni í fljótandi formi að halda. En þar sem vatn er bæði úrvals leysir, og líklega að finna mjög víða í alheiminum, eru samt líkur á að vatn komi við sögu í einhverri mynd í þróun hvaða lífs sem vera vill.
Við þurfum að passa okkur að vera ekki of þröng í skilgreiningum okkar á lífi, annars gætum við óvart látið líf sem við finnum fara framhjá okkur. Ég yrði t.d. pirraður ef geimvera lenti í garðinum mínum, kæmi út og spyrði mig: “Fyrirgefðu, er eitthvað líf að finna á þessum hnetti?” og ég segði: “Halló, ég er líf”, og hún segði á móti: “ha, nei, þú ert ekki með gulan rana, ojæja, ég fer þá bara eitthvað annað í leit minni að lífi”
Við þurfum samt líka að passa okkur að ganga ekki of langt í að kalla hvað sem er líf, annars gæti maður endað í óendanlega löngum samræðum við vegg, einhverstaðar útí geimi.
Hvernig finnum við líf?
Nú stunda að minnsta kost tvær stofnanir rannsóknir á lífi utan jarðarinnar. Þær eru SETI (Search for Extra Terrestrial
SETI var stofnuð 1984 og felst starf þeirra sem þar vinna aðallega í því að reyna að finna boð frá greindum “geimverum” í þeim aragrúa útvarpsbylgna sem berast til jarðar. Þeir fókusa semsagt á leit að lífi utan sólkerfisins.
Telja má líklegt að ef “geimverurnar” nota útvarpsbylgjur til samskipta þá hafi þær kóðað sendingar sínar mjög vel. Við myndum því ekki þekkja þær sendingar frá ruslinu. Ef við tökum sem dæmi loftskeytamann í seinni heimsstyrjöldinni þá getum við staðhæft að ef hann fengi í hendurnar sjónvarpssendingu frá nútímanum þá myndi hann ekki gera sér grein fyrir því hvað hún væri.
Það verður líka að teljast harla ólíklegt að “geimverur” noti samskonar tækni og við á jörðinni.
Segja má að þessi leið sé ekki mjög líkleg til árangurs því gallarnir eru augljósir.
NASA þekkja allir. Hjá NASA vinna margir stjörnulíffræðingar sem vinna við leitina að lífi. Þeirra rannsóknir á þessu sviði felast meira í hands-on-approach. Þeir fókusa á leit að lífi innan okkar sólkerfis. Þeir hafa til dæmis á teikniborðinu ómannaða ferð til Evrópu til þess að reyna að finna út hvort þar megi finna frumstætt eða jafnvel þróað líf. Einnig er áætluð í nánustu framtíð mönnuð ferð til Mars. Í þeirri ferð mætti reyna að finna vísbendingar eða sannanir fyrir því að þar hafi eitt sinn verið líf. Einnig líta þeir til Títans með það í huga að finna hvernig líf getur myndast.
Þessi leið er mun líklegri til árangurs því við höfum ýmsar vísbendingar um að líf geti fundist annarsstaðar innan sólkerfisins en á jörðinni.
Hvar finnum við líf?
Þessari spurningu verður að skipta í tvennt. Hvar finnum við líf innan sólkerfisins og hvar finnum við líf utan þess?
Fyrri hlutanum höfum við svarað lauslega. Líklegustu staðirnir til þess að finna líf utan jarðarinnar eru í innra sólkerfinu og á tunglum ytri plánetanna. Innra sólkerfið hefur í raun bara einn kandídat, Mars.
Mars hefur á einhverjum tímapunkti haft bæði fljótandi vatn og þéttari lofthjúp og því er ekki ólíklegt að þar gæti hafa myndast frumstætt líf a la jörðin. Það líf væri þó líklegast útdautt núna vegna loftslagsbreytinga.
Evrópa er helsti möguleiki tunglanna því þar er vatnshaf og einnig hefur hnötturinn fljótandi kjarna. Af þessu má leiða að á Evrópska hafsbotninum megi einnig finna svokallaða black smokers líkt og á jörðinni. Það er ekki svo merkilegt nema fyrir þær sakir að þar telja margir vísindamenn að líf hafi myndast á jörðinni.
Seinni hlutanum er auðvelt að svara. Við vitum það ekki og það er engin leið til þass að vita það með nútímatækni. Möguleikarnir á mismunandi lífi eru óendanlega margir, það er ekkert sem segir okkur að lífverur þurfi að hafa DNA, drekka vatn og borða kex.
Líklegast er að finna líf á plánetu sem ferðast umhverfis sól, hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu að líf gæti þróast á einstökum hnetti, eða jafnvel í gasrisa eða á loftsteini, svo lengi sem orku-uppspretta er til staðar, það verður þó að viðurkennast að þessar aðstæður eru ögn ólíklegri en aðrar, þar eð aðstæður eru all-svakalegar.
Við verðum að gera ráð fyrir að líf þróist við þær aðstæður sem eru bestar fyrir það, þess vegna mætti snúa þessu við og segja að við gefnar aðstæður gæti þróast það líf sem hentar þeim aðstæðum best.
Lokasvarið við þessari spurningu er því ómögulegt að finna fyrr en við getum ferðast út fyrir sólkerfið okkar.
Er raunhæft að leita að lífi utan sólkerfisins okkar?
Miðað við nútímatækni myndum við telja að peningunum sem eytt er í SETI á hverju ári væri betur varið í eitthvað uppbyggilegra eins og geimskip sem gætu mögulega flutt mannkynið til næstu stjarna. Einnig væri eflaust betra að fókusa á sólkerfið okkar áður en við reynum fyrir okkur annarsstaðar.
Hvað myndi gerast ef við fyndum líf.
Það veltur auðvitað á ýmsu. Á hvaða tæknistigi erum við þegar fundurinn á sér stað? Hvað er langt að fara? Hversu flóknar lífverur er um að ræða? Eru þetta vitsmunaverur? Ef svo er, á hvaða tæknistigi eru þær? Ef það er líf sem er mjög ólíkt lífi sem við þekkjum, munum við gera okkur grein fyrir því að það er líf?
Ef við fyndum einfrumunga innan okkar sólkerfis yrði það vísindauppgötvun sögunnar, vísindamenn myndu keppast um að skoða myndir, og allt kapp yrði lagt á að koma sýni í hendurnar á vísindamönnum á jörðu, eða jafnvel að koma vísindamönnum í vettvangsskoðun. Sú uppgötvun myndi kalla á víðtækar endurskoðanir á stjörnufræði, líffræði, trúarbrögðum og mörgu fleiru.
Ef við fyndum flóknara líf en þetta, t.d. vitsmunalíf með menningu, eru ýmsar spurningar sem þarf að svara. Hugsa þær á einhvern hátt sem við getum skilið, geta þær haft tjáskipti sín á milli, og ef svo er getum við lært að tjá okkur við þær? Ef þetta gerist það langt í framtíðinni að búið verður að finna upp aðferð til að ferðast til fjarlægra stjarna á ekki of löngum tíma, eða ef geimverurnar sem við finnum búa yfir slíkri tækni, eða ef geimverurnar finnast svo nálægt okkur að hægt væri að komast þangað á hefðbundinn hátt á einni mannsævi, mun þetta óhjákvæmilega leiða til þess að við munum reyna hvað við getum að komast að hitta þessar geimverur og sjá með eigin augum, jafnvel til að skiptast á hugmyndum eða vörum, en þetta er að sjálfsögðu lokadraumur allra sem stunda leitina að lífi.
Spurningin er hvort við séum tilbúin fyrir slíka uppgötvun, hún myndi gjörsamlega breyta öllu. Sumir menn myndu jafnvel vilja eyða þessu lífi til að þurfa ekki að eiga við þá tilhugsun að við séum ekki einstök í alheiminum. Og hvað ef þetta líf er statt einhverstaðar nálægt upphafi þróunarinnar, förum við þá samt og svölum forvitni okkar, og tökum sénsinn á að eyðileggja alla framtíð þessa lífs, eða höldum við að okkur höndunum?
Sumir bjartsýnismenn hafa haldið því fram að uppgötvun á vitsmunalífi í geimnum myndi þjappa fólki saman, það myndi hætta að einblína á kynþætti, fæðingarstaði og trúarbrögð og gullöld í mannkynssögunni myndi hefjast. Aðrir hafa haldið fram að menn myndu sjá þarna möguleika til nýlendustofnanna, og jafnvel til að leggja undir sig heimkynni lífveranna sem við finnum. Eða að ofstækismenn myndu útmála geimverurnar sem óvin sem menn þyrftu að standa saman gegn og fylkja þannig liði um sig.
Þetta kann þó að virðast of skammsýnt, enn er til fjöldi fólks sem trúir því að Guð almáttugur hafi skapað manninn í núverandi mynd fyrir 6000 árum eða svo, hvernig bregst svoleiðis fólk við einhverju sem umturnar allri heimsmynd þeirra á einu bretti?
Þessar spurningar eru of fjarlægar okkur til þess að við gætum mögulega svarað þeim. Við skulum því bíða átekta og vona það besta.
Hvað með fólk sem hefur “séð”geimverur?
Málið er það að geimverur virðast hafa tekið við því hlutverki sem draugar, skrýmsli og önnur kvikindi höfðu fyrir fólk fyrr á öldum. Mannshugurinn reynir hvað hann getur til þess að túlka furðuleg hljóð og ljós sem maðurinn nemur og það fer eftir menningu hvers tíma hvað menn telja sig hafa séð. Ástæðan fyrir því að fólk trúir frekar svona sögum en draugasögum nú til dags er sú að geimverusögur hljóma „vísindalegri” en draugasögur. Nú trúa fáir á drauga en fleiri á geimverur. Þetta er vegna þess að nú er fólk almennt vísindalega upplýstara en áður fyrr.
Það er fátt á hreinu varðandi leitina að lífi. Hvað er líf? hvernig finnum við það? vitum við að það er líf þegar við finnum það? hvað gerum við þegar við finnum það? Við getum ekki svarað neinum af þessum spurningum með neinni vissu fyrr en einhver praktísk reynsla kemur í ljós. En eitt er víst, þegar kemur að því að menn ferðast til annarra pláneta, eða annarra sólkerfa þurfum við að fara mjög varlega. Höfum við rétt á því að bora gegnum ísþykkildið á Evrópu til að kanna hvort líf sé að finna í vatninu þar undir? Hver veit hvaða áhrif slíkar boranir hefðu á það líf? Við gætum jafnvel drepið það. Og hvað ef þetta er vitsmunalíf, myndi ekki borvél á fullri ferð komandi út úr því sem þetta líf héldi e.t.v. að væri endimörk alheimsins hafa ófyrirsjáanleg áhrif á alla þeirra framtíð?
Það sem hefur rekið mannkynið áfram frá örófi alda er forvitni, þörfin fyrir að vita og skilja. Og hingað til hefur ekki verið nema gott eitt um það að segja. Í versta falli hefðum við getað útrýmt okkur sjálfum. Það sem við þurfum e.t.v. að passa í framtíðinni er að forvitni okkar verði ekki öðrum að falli.
föstudagur, febrúar 06, 2004
Mér hafa borist fregnir af væli...þetta væl snýst víst um skrifleysi á síðuna mína. Foj! Annars er ég svo 1337 að ég er búinn að fá vinnu í ráðhúsinu fyrir sumarið. Ekki nóg með það heldur fékk ég líka vinnu við undirbúning Bioastronomy 2004 sem er ráðstefna sem haldin verður í Reykjavík í sumar. FYI þá er bioastronomy/astrobiology/xenoscience það sem ég hef í hyggju að læra þegar bs-inn er búinn. Cross-disciplinary-fræðigrein sem fjallar um upphaf lífs og möguleika á því annarsstaðar í heiminum. Þá er yfirleitt verið að pæla í"jarðnesku" lífi, eina lífsforminu sem við þekkjum (carbon-based með dna erfðaefni). Þó er gaman að hypothesize-a um lífsform sem væru svo ólík því sem við þekkjum að við myndum ekki fatta að þau væru lifandi at all...
'tis an interesting thought innit?
föstudagur, desember 19, 2003
sunnudagur, desember 14, 2003
Forgotten Lores
Þessi hljómsveit afsannaði þá kenningu mína að íslenskt rapp sökkaði. Quite excellent...

You are Phlegmatic. You have a peace-loving
nature, and make a good listener and a faithful
friend. You do have a tendency to be selfish
and stubborn in your worst moments, and your
worrying can lean towards paranoia. Phlegmatics
should consider careers as accountants,
diplomats, engineers, and administrators. You
are a somewhat reluctant leader, but your
practicality and steady nerve under pressure
makes you a natural choice for leadership
roles.
Which of the Humours are you?
brought to you by Quizilla
Það er aldeilis, "peace-loving nature" gætu sumir sett spurningarmerki við og við þá segi ég: "Fokkaðuðér mellanðín!". Tja neinei, mér finnst bara að aggression sé nauðsynleg í einhverju magni (en þó að hún beinist eingöngu gegn þeim sem eiga það skilið). Þó er að sjálfsögðu mín heitasta ósk að friður ríki á jörð og...
Shia! I'sa being talkin' lik'a bia-tch. Someone is needin' to smack me like sum dum hoe!
fimmtudagur, desember 04, 2003
Viktor búinn að vera að tauta um link í marga daga, læt það eftir honum...annars er lítið að gerast í mínu lífi. Hugsa að ég breytist bráðum í amphioxus ef áfram heldur sem horfir. Og þá verður sko lítið úr pimpcareernum mínum! Ég held að ég þurfi samt að finna mér hoe! til að geta kallað mig pimp, það er víst lítið um þær heima hjá mér þannig að ég held ég fari bráðum að kíkja út úr húsi.
Svo langar mig til þess að lay my pimphand upon fólkið sem vill láta banna box á ný af því einhverjum tókst að slasast. Hefur enginn heyrt um frjálst val? Ef ég geri mér grein fyrir því að ég er að fara að keppa í íþrótt sem felst í höggum í bol og höfuð og tek þá ákvörðun að taka þátt...hvurn andskotann kemur fólki þá við hvort ég slasa mig eða ekki? Ég sjálfur hef oft keppt í karate, sem er íþrótt sem nb. hefur aldrei verið bönnuð á íslandi, ég hef nefbrotnað tvisvar og blætt hefur inn á kinnbeinið á mér þannig að ég leit út fyrir að hafa fengið collagensprautu. Ég gerði mér grein fyrir áhættunni og langaði samt sem áður að taka þátt, ég var kannski laminn í klessu en það var gaman!
I say, let the people do what they want when they want, eins lengi og það hefur ekki áhrif á aðra í kringum það.
Ég styð hins vegar ekki lögleiðingu eiturlyfja. Það hefur áhrif á fólk í kringum neytendur.
Og svo í lokin læt ég fylgja texta við eðallag...
Atmosphere - The woman with the tattooed hands
I used to know this woman who had the most beautiful
tattooes on the top sides of both of her hands
She was forty-three years old and as far as I know
had never yet been with a man
It's not that she wasn't attractive;
she was beautiful, but it was the way that she interacted
She was aggresively passive to the point where she
would've intimidated any mitt that ever tried to catch it
on the right hand she had a tattooe of a nude girl
she claimed it is what God resembled
but on the left she had a mirrored image of the same female
and this one she explained looked like the devil
I remember once watching her touch her own breasts
how the tattooes smiled as they stared down her stomach
as if anticipating when they'd be allowed to caress
the sweet flower that they both seemed too hungry (sweet flower)
Now maybe I was high but it felt so right
heaven and hell both take to this woman's womb
It didn't make sense how she could commence
touching herself with me wide awake in the same room
but if I've learned anything in my years (my years)
I learned I no longer believe in surprise (in surprise)
but what happened next damn near stold my tears
the tattooes came alive right in front of my eyes
they both slowly stood up and climbed off her hands
and showed me why she never took some time with a man
they climbed deep inside of this woman's garden
she closed her eyes and she gently bit her bottom lip
I stepped, I left and I don't regret leaving
and I'd never forget all the things I saw that evening
a glimpse of religion, a piece of coming closer
to understanding more about what intrigues me most
I didn't get turned on I just got turned
I wasn't as aroused as I was concerned
for each one of em I've hurt
and every time I've been burned
I've got a lot to teach but even more to learn
so now I keep my eyes open hoping to take in all I can
about women taking in all she can
And for as long as I breathe I'll save a seat in my memory
for that woman with the tattooed hands
(Chorus: repeat 5x till song fades)
There's good and evil in each individual fire
Identifies needs and feeds our desire
As long as we keep our spirit inspired
She can bite her bottom lip all she wants
mánudagur, desember 01, 2003
Ég er búinn að finna framtíðarstarf fyrir mig.
Mista B the P.I.M.P.
Nú vantar bara Jungle love með Morris Day and The Time...then it'd be perfect.
(Ooh ooh ooh, aah aah aah aah)
I, I've been watching you
I think I want to know ya (know ya)
I said I am a little dangerous
Girl I want to show ya (show ya)
My jungle love, yeah (oh eee oh eee oh)
I think I want to know ya (know ya)
Jungle love (oh eee oh eee oh)
Girl I'm goin' to show ya (show ya)
You, you've got a pretty car
I think I want to drive it (dive it)
I, I drive a little dangerous
Take you to my crib and crib you up, huh
(Jungle love)
Look out! Oh! (oh eee oh eee oh)
I think I want to know ya (know ya)
Oh! Jungle love, yeah (oh eee oh eee oh)
Girl I'm goin to show ya (show ya)
C'mon baby where's your guts?
You want to make love or what? (oh eee oh eee oh)
I will take you to my cage
Lock you up and hide the key (oh eee oh eee oh)
You are only getting powder babe
'cause if you're hungry, take a bite of me
(oh eee oh eee oh)
Oh! Jungle love, yes, um! (oh eee oh eee oh)
Think I want to know ya (know ya)
Hey! Jungle love, um!, (oh eee oh eee oh)
Um! Girl I'm goin' to show ya (show ya)
Yeah, yeah, yeah!
Jungle love, oh! (oh eee oh eee oh)
I think I want to know ya (know ya)
Jungle love (oh eee oh eee oh)
Girl I think I wanna (show ya)
I think wanna something else
Hey Jessie! No now Jerome, yes (oh eee oh eee oh)
Check it out!
(oh eee oh eee oh)
(oh eee oh eee oh)
Jungle love, yeah (oh eee oh eee oh)
I think I wanna know ya (know ya)
Oh! Jungle love, yes, (oh eee oh eee oh)
Um! Girl I'm goin' to show ya (show ya)
Hey! Now jungle love, well, (oh eee oh eee oh)
Um! I think I wanna
I think I wanna (show ya)
Jellybean! huh, Whooa! (oh eee oh eee oh)
Yeheheheah!
Weeee haha
Oh! That's it, that's it
Hold on....
Búinn að breyta til hér til að friða minimalistann í mér, hey rím! Kannski ætti ég að gerast MC...Hmm, greinilega kominn tími til að sofa smá.


